10.01.2026

Fjárhags­legur grunnur upp­byggingar í Blikastaðalandi styrkt­ur

Í gær var undirritað samkomulag Mosfellsbæjar og Blikastaðalands ehf., sem er í eigu Arion banka hf., um uppbyggingu á Blikastaðalandi í Mosfellsbæ. Nýja samkomulagið felur í sér hækkun framlags Blikastaðalands ehf. vegna uppbyggingar helstu innviða, svo sem grunnskóla, leikskóla og íþróttahúss.

Gert er ráð fyrir um 3.500 – 3.700 íbúðum á svæðinu sem er skipulagt í þremur áföngum. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir rúmlega 1.200 íbúðum og fjölgun íbúa um þrjú þúsund.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir að nýja samkomulagið, sem verður viðauki við upphaflegan samning frá árinu 2022, sé hagfelldara fyrir íbúa Mosfellsbæjar og greiði fyrir uppbyggingu á Blikastaðalandi. Innviðagjöld hækka og greiðslur berast fyrr til sveitarfélagsins, eða í takt við uppbyggingu hverfisins. Á móti er ekki gert ráð fyrir hlutdeild í framtíðarsölu lóða eins og fyrri samningur byggði á. Helstu breytingarnar eru þessar:

  • Greiðslur koma fyrr í ferlinu til að mæta kostnaði við uppbyggingu innviða s.s. skóla og leikskóla.

  • Framlag sem áður var tengt íþróttamannvirkjum tvöfaldað.

  • Landið sem leikskólinn Höfðaberg stendur á rennur til Mosfellsbæjar og leikskólinn getur því starfað óbreyttur áfram.

  • Gert er ráð fyrir byggingu tveggja grunnskóla, fjögurra leikskóla, íþróttahúss og a.m.k. fjögurra búsetukjarna fyrir fatlað fólk á Blikastaðalandi.

  • Framkvæmd samningsins er með þessu töluvert einfaldari, m.a. þar sem í stað þess að greitt sé með afhendingu á lóðum í framtíðinni er greitt með fjármunum.

  • Greiðslur til sveitarfélagsins vegna heildaruppbyggingar á Blikastaðalandi fara úr því að nema um 12 milljörðum króna, í formi greiðslna og afhendingu lóða, í greiðslur sem berast fyrr og munu alls nema allt að 16 milljörðum króna.

Bæjarstjórn samþykkti samkomulagið samhljóða á fundi í gær, miðvikudaginn 7. janúar.

„Það er mjög ánægjulegt hvað bæjarstjórn er samstíga í þessu verkefni. Við höfum lagt mjög mikla vinnu í samkomulagið meðal annars með gerð áhættugreiningar þar sem við skoðuðum áhrif uppbyggingarinnar á fjárhag sveitarfélagsins til næstu 10 ára” segir Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri. „Með þessu samkomulagi er kominn traustur grundvöllur fyrir áframhaldandi vinnu við uppbyggingu Blikastaðalands” segir Regína ennfremur.

„Undanfarin ár höfum við hjá Arion banka unnið að þróun tveggja stórra byggingarsvæða á höfuðborgarsvæðinu í góðri samvinnu við sveitarfélögin sem þau tilheyra. Hefur markmiðið verið að upp rísi eftirsóknarverð hverfi sem styrkja nærumhverfið með góðri tengingu við aðliggjandi náttúru,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. „Á síðasta ári kláraðist annað þessara verkefna, Arnarlandið í Garðabæ, og nú hefur þessi mikilvægi áfangi náðst sem færir okkur nær því að uppbygging geti hafist á Blikastaðalandi, einu stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins,“ segir Benedikt.

Þrátt fyrir að aukið framlag Blikastaðalands ehf. til uppbyggingar innviða þá leiðir nýja samkomulagið til óverulegra breytinga á bókfærðu virði Blikastaðalandsins í bókum Arion banka.

Deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga Blikastaða verður lagt fram í skipulagsnefnd í janúar og þá hefst opið samráðsferli þar sem íbúum gefst kostur á að senda inn athugasemdir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira