24.03.2021

Fjar­þjónusta í ljósi að­stæðna

Okkur er umhugað um velferð viðskiptavina okkar og starfsfólks. Vegna COVID-19 og hertra aðgerða stjórnvalda munum við frá og með 25. mars loka á heimsóknir í útibú okkar nema þær séu bókaðar fyrir fram og þá einungis fyrir brýn erindi. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að nýta aðrar þjónustuleiðir eins og Arion appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma nær allar aðgerðir.

Við erum áfram til staðar fyrir þig og þú getur heyrt í okkur í síma 444 7000, sent okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða haft samband við okkur í gegnum netspjall á www.arionbanki.is. Einnig eru hraðbankar okkar aðgengilegir um land allt og bjóða upp á innlagnir, úttektir og margt fleira.

Bankinn til þín

Þú getur einnig notað snjallsímann þinn, spjaldtölvuna eða tölvuna til að fá ráðgjöf um vörur eða aðra þjónustu augliti til auglits, hvar sem er á fjarfundi.

Bóka fjarfund

Ef erindið er brýnt getur þú bókað fund

Ef úrlausnarefnið er brýnt getur þú óskað eftir afgreiðslu í útibúi. Þjónusta í útibúi er þó aðeins veitt ef erindið er þess eðlis að ekki er unnt að leysa úr málum nema augliti til auglits. Í slíkum tilvikum þarftu að bóka tíma sérstaklega. Hringdu í okkur, sendu tölvupóst eða skráðu þig hér fyrir neðan og við höfum samband við þig varðandi tímabókun.

Bóka fund

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira