30.06.2021

Fjór­föld eftir­spurn í hluta­fjárút­boði Solid Clouds

Mikil eftirspurn var í hlutafjárútboði tölvuleikjafélagsins Solid Clouds sem lauk klukkan 16 í dag, miðvikudaginn 30. júní. Samtals bárust nær 2.700 áskriftir fyrir um 2,8 milljarða króna. Er það um fjórföld umframeftirspurn en Solid Clouds leitaðist eftir því að gefa út nýja hluti fyrir um 725 milljónir króna.

Útboðið skiptist í tvær áskriftarbækur. Annars vegar áskriftarbók A fyrir áskriftir undir 15 milljónum króna og hins vegar áskriftarbók B fyrir áskriftir yfir 15 milljónir króna. Verð á hlut var 12,5 kr.

  • Í áskriftarbók A bárust áskriftir fyrir samtals 1,8 milljarð króna

  • Í áskriftarbók B bárust áskriftir fyrir samtals 900 milljónir króna

Arion banki var umsjónar- og söluaðili úboðsins.

Stjórn Solid Clouds mun nú yfirfara þær áskriftir sem bárust og taka afstöðu til þeirra. Ráðgert er að niðurstaða varðandi úthlutun liggi fyrir eigi síðar en í lok dags 1. júlí 2021. Gjalddagi og eindagi áskriftarloforða í útboðinu er áætlað að verði miðvikudaginn 6. júlí 2021. Áætluð afhending hluta og taka til viðskipta á Nasdaq First North markaðnum er 12. júlí 2021.Tilkynnt verður um fyrsta viðskiptadag með hlutabréfin með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

Óhætt er að fullyrða að útboðið brjóti blað í fjármögnun vaxtarfyrirtækja hér á landi og mun koma til með að auka fjölbreytni fjárfestingakosta. Þá eru vonir bundnar við að skráning Solid Clouds auki áhuga og þátttöku ungs fólks á fjármálamarkaði, stuðla að opnum og virkum markaði með vaxtarfyrirtæki og styrkja fjármögnunarumhverfi íslenskra nýsköpunarfyrirtækja.

Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds:

„Ég er mjög þakklátur fyrir það hversu margir einstaklingar sýndu félaginu áhuga. Það er mikil hvatning fyrir Solid-teymið fram á veginn. Fram undan hjá félaginu er útgáfa nýs leiks á næsta ári og við hlökkum til að deila þeim árangri með hluthöfum félagsins,“ segir Stefán.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira