02.10.2026

Arion banki fell­ur frá boð­uð­um hækk­unum og leit­ast við að halda hækk­unum inn­an við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Í ljósi þess brýna verkefnis að samfélagið allt sammælist um að ná niður verðbólgu og að uppsagnarákvæði kjarasamninga verði ekki virkjað 8. október nk., hefur Arion banki ákveðið að fresta gildistöku þessara hækkana. Sambærilegar hækkanir á verðskrá bankans vegna þjónustu við fyrirtæki áttu að taka gildi í byrjun október en gildistöku þeirra verður einnig frestað. Jafnframt munum við leitast við að halda almennum hækkunum á gjaldskrá bankans vegna þjónustu við einstaklinga innan við 2,5% næsta árið.  

Þegar kemur að heildarhækkun almennrar verðskrár Arion banka vegna þjónustu við einstaklinga, þá nemur hún um 7,5% frá árinu 2022. Á sama tímabili hefur verðlag hækkað um 34,6%, þannig að raunvirði hefur verðskráin okkar lækkað um 20% frá árinu 2022. Samhliða þessu hefur fjöldi þjónustugjalda verið felldur niður og gengisálag á kortaviðskiptum lækkað. Sú þjónusta, sem er bæði í boði í útibúum okkar og í Arion appinu eða netbanka, er oftar en ekki án gjaldtöku þegar viðskiptavinir framkvæmda hana sjálfir með stafrænum hætti. Einnig má nefna að kortagjöld okkar hafa almennt hækkað um 19% á þessu tímabili sem felur í sér raunlækkun um ríflega 11%.  

Hvað dótturfélög Arion banka varðar er rétt að benda á að Stefnir hefur á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á að gera fjárfestingar aðgengilegri fyrir einstaklinga og heimili. Gengismunur sjóða var felldur niður, lágmarksfjárhæð og afgreiðslugjöld við kaup og sölu afnumin ásamt því að þóknanir fjölmargra sjóða voru lækkaðar. Vissulega er sparnaður sem þessi ekki hluti af daglegri neyslu heimila landsins en skiptir samt máli í samhengi hlutanna. 

Vörður hefur ekki gripið til almennra gjaldskrárhækkana gagnvart einstaklingum frá árinu 2024 og engar slíkar eru fyrirhugaðar. Iðgjöld í tryggingum taka að mestu leyti mið af þróun verðlags þar sem kostnaður vegna tjóna fylgir almennt þeirri þróun. Þrátt fyrir það hefur meðalheildariðgjald einkabílatrygginga hjá Verði, sem eru oftast stærsti hluti trygginga heimila, hækkað um 9% frá árinu 2024 á sama tíma og vísitala neysluverðs hefur hækkað um 14%.  

Tryggingar og fjármálaþjónusta vega í dag 1,23% af vísitölu neysluverðs. 

Við hjá Arion banka höfum á undanförnu ári birt nokkrar greinar þar sem við beinum sjónum okkar að leiðum til að lækka vexti hér á landi og draga úr áhrifum verðbólgu og verðtryggingar. Markmiðið með þessum skrifum er fyrst og fremst að stuðla að málefnalegri umræðu um fjármálakerfið, verðbólgu og vaxtastig til lengri tíma og teljum við mikilvægt að sem flestir taki þátt í þeirri umræðu og kannski ekki síst lífeyrissjóðir, stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins.  

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira