16.08.2016

Frá­bær stemning á Arion banka mót­inu um síð­ustu helgi

Mikill fjöldi fólks var saman kominn í félagssvæði Víkings í Fossvogi um síðustu helgi á Arion banka mótinu í fótbolta. Metþátttaka var á mótinu en um 2.500 þátttakendur í 410 liðum tóku þátt í keppninni í ár.

Frábær stemning var í Víkinni og heppnaðist mótið afar vel. Boðið var upp á andlitsmálningu og Bíbí, Blaki og Ari voru að sjálfsögðu á staðnum og sáu um að skemmta krökkunum.

Arion banka mótið er fyrir börn í 7. og 8. flokk stúlkna og drengja og er stærsta mótið þar sem bæði kynin spila á sama tíma. Er þetta í sjöunda sinn sem mótið er haldið og hefur fjöldi þátttakenda farið vaxandi ár frá ári.

Skemmtilegar myndir frá mótinu má sjá hér og liðsmyndir er hægt að nálgast hér. Allar liðsmyndir frá laugardeginum eru komnar inn og liðsmyndir frá sunnudeginum verða komnar inn í síðasta lagi fimmtudaginn 18. ágúst.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira