14.02.2025

Frá­bær stemning á eins árs af­mæl­is­fögn­uði Kon­ur fjár­festum

Þann 12. febrúar 2025 hélt Arion banki glæsilegan viðburð í Hörpu undir yfirskriftinni „Jöfnum leikinn“, til að fagna því að heilt ár er liðið frá því að bankinn ýtti úr vör Konur fjárfestum átaksverkefni sínu.

Viðburðurinn var fjölsóttur enda flykktust konur vítt og breitt úr íslensku samfélagi í Norðurljósasal Hörpu til að hlýða á dagskrána.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, hélt líflegt opnunarerindi þar sem hún lýsti vitundarvakningu sinni í jafnréttismálum og baráttu fyrir auknum umsvifum kvenna á fjármálamarkaði.

Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka, benti á að 4500 konur hafi þegar sótt fimmtíu Konur fjárfestum viðburði vítt og breitt um landið. Þeirri staðreynd fylgdi dynjandi lóftak.

Iða Brá stýrði einnig afslöppuðu spjalli við heiðursgest kvöldsins, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem ræddi um stjórnmálaferil sinn og jafnréttisbaráttu.

„Hver kynslóð þarf að finna sína leið til að gera hlutina,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Þess vegna er erfitt að gefa yngra fólki nákvæmar leiðbeiningar. Eitt er þó víst: Þetta má þetta ekki vera eintómur barningur, þetta þarf líka að vera gaman og skemmtilegt. Og konur þurfa að standa þétt saman. Sterk vinátta sterkra kvenna flytur fjöll. Baráttan reynir auðvitað stundum á þolrifin og þá er mikilvægt að hafa gott fólk á bak við sig.“

Fjárhagslegt sjálfstæði er ekki áhugamál

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut viðurkenningu fyrir ævistarf í þágu jafnréttis. Hún uppskar standandi lófatak þegar hún steig aftur upp á svið til að taka við verðlaununum.

Fortuna Invest hlaut viðurkenningu fyrir hvatningu til fjárfestinga. Á bak við Fortuna Invest eru þær Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir. Saman halda þær úti fréttabréfi um fjárfestingar, vinsælum Instagram-reikningi og hafa gefið út metsölubókina Fjárfestingar.

Viðurkenningu fyrir fjárfestingu ársins fékk svo hin íslenska kona – til dæmis allar þær áhugasömu og öflugu konur sem flykkst hafa á Konur fjárfestum viðburðina.

Það voru þær Snædís Ögn Flosadóttir og Helga Sigurrós Valgeirsdóttir sem veittu viðurkenningarnar fyrir hönd Arion banka.

„Að búa yfir góðu fjármálalæsi og vera fjárhagslega sjálfstæð er ekki áhugamál,“ sagði Snædís Ögn. „Það er grunnfærni í lífinu, eins og að skipta um dekk og setja í þvottavél.“

Um Konur fjárfestum

„Konur fjárfestum“ er langtímaátaksverkefni sem Arion banki hóf snemma árs 2023 með það að markmiði að efla þátttöku kvenna á fjármálamarkaði og stuðla að fjárhagslegu sjálfstæði þeirra. Þrátt fyrir framfarir í jafnréttismálum hér á landi er þátttaka kvenna í fjárfestingum enn minni en karla. Með þessu verkefni vill bankinn hvetja konur til að taka virkan þátt í fjárfestingum og þannig hafa áhrif á samfélagið. Þótt hlutirnir séu farnir að þokast í rétta átt þurfum við öll að leggjast á eitt til að flýta þróuninni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira