04.12.2024

Frá­bær þátt­taka í Fjár­festingar­keppni há­skól­anna

Góð þátttaka var í Fjárfestingarkeppni háskólanna sem Arion banki hélt í samstarfi við Dyngju. Í keppninni fá háskólanemendur um allt land að spreyta sig á fjárfestingum án þess að taka nokkra raunverulega fjárhagslega áhættu.

Sem fyrr fór keppnin fram í gegnum Dyngju appið þar sem þátttakendur fá tíu milljón sýndarveruleikakrónur til að nýta í fjárfestingar. Keppendur geta átt viðskipti með sjóði Stefnis og öll þau hlutabréf sem skráð eru á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi.

Keppnin fór fram dagana 14. október - 11. nóvember. Þá var einnig efnt til bónusviku dagana 12.-16. nóvember vegna mikils áhuga. (Sjá frekari upplýsingar um bónusvikuna.)

Íþróttafólk og verðbréfamiðlarar oft með svipaða skapgerð

Martin Bjarni Guðmundsson bar sigur úr býtum í aðalkeppninni. Hann stundar BS-nám í hagfræði og fjármálum við Háskóla Reykjavíkur.

Hvert er lykillinn að þessum góða árangri?

„Bara. Ég fylgdist vel með markaðnum og sótti 1-2% hér og þar, nýtti mér hækkanir og flökt á verði ...“

Ætlarðu að leggja þetta fyrir þig í framtíðinni?

„Ég ætla í löggildingu hjá verðbréfamiðlara nú í desember. Klára verðbréfamiðlarann, leita mér svo að vinnu eftir útskrift og öðlast reynslu. Það er stefnan. Síðan sé ég til hvort ég fari í meistaranám hér heima eða úti þegar fram líða stundir.“

Hvar sérðu þig fyrir þér eftir tíu ár?

„Vonandi í einhverri sjóðsstýringu!“

Martin Bjarni er á fullu í fimleikum meðfram háskólanáminu og stundar íþróttirnar af kappi í herbúðum Gerplu. Hann segist greina vissan þráð í skapgerð íþróttafólks og þeirra sem sækja í að starfa á verðbréfamarkaði.

„Já, það er þetta keppnisumhverfi. Þú þarft keppnisskap til að skara fram úr og gera vel.“

Nöfn sigurvegara í bónusviku: 1. sæti Ólafur Helgi Örvarsson (HÍ), 2. sæti Gauti Steinþórsson (HR) og 3. sæti Kristófer Ingi Kristinsson (HA).

Um Fjárfestingarkeppni háskólanna

Markmiðið með Fjárfestingarkeppni háskólanna er að efla fræðslu um fjármál og fjárfestingar og gera nemendum kleift að kljást við raunveruleg verkefni úr atvinnulífinu. Arion banki hvetur nemendur til að skoða fræðsluefnið sem má finna í Dyngju appinu en þar er farið yfir helstu atriði og hugtök tengd fjárfestingum.

Um Dyngju

Dyngja er spegilmynd íslensks fjármálamarkaðar. Þar má eiga viðskipti með hlutabréf skráð á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi. Gögn miðast við kaup- og sölugengi á raunmarkaði. Sækja má Dyngju appið í App Store eða Play Store.

Nöfnin á eigendum Dyngju appsins: Alexander Sigurðarson, Reynir Freyr Hauksson, Magnús Benediktsson og Fannar Logi Hannesson sem var fjarverandi í verðlaunaafhendingu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira