28.03.2017

Fræðsla um sparnað til fyrstu fasteigna­kaupa

Kaup á fasteign eru meðal stærstu fjárfestinga einstaklinga og því skiptir góður undirbúningur og þekking á fjármögnunarleiðum miklu máli. Arion banki býður til til tveggja opinna fræðslufunda um kaup fyrstu fasteignar. Fundirnir fara fram á Akureyri og í Reykjavík.

Akureyri - fimmtudaginn 30. mars kl. 12:30-13:30
Í Háskólanum á Akureyri, stofu M101 (við aðalinngang skólans).
Skráning á fundinn

Reykjavík - þriðjudaginn 4. apríl kl. 17:30-18:30 
Í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Fundinum verður einnig streymt beint á Facebook síðu Arion banka.
Skráning á fundinn

Frá 1. júlí 2017 nk. verður mögulegt að ráðstafa skattfrjálst allt að 500.000 kr. af viðbótarlífeyrissparnaði á ári, til greiðslu inn á fyrstu eign. Á fundunum verða helstu atriði tengd íbúðalánum kynnt auk þess sem fjallað verður sérstaklega um notkun viðbótarlífeyrissparnaðar til fjármögnunar. Fyrirlesarar og helstu umfjöllunarefni þeirra eru:

Breki Karlsson: Hvað þarf að vita um íbúðalán?
Breki er forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi og mun á fundunum fara yfir helstu hugtök sem tengjast íbúðalánum og í fasteignakaupum. Markmið Breka er m.a. að svara spurningunni „hvað eru vextir, verðbólga og verðtrygging og af hverju þarf ég að vita það?“

Snædís Ögn Flosadóttir: Notkun viðbótarlífeyrissparnaðar til kaupa á fyrstu fasteign
Snædís er framkvæmdastjóri lífeyrissjóðanna LSBÍ og EFÍA. Hún mun fara yfir hvernig hægt er að nýta skattfrjálsan viðbótarlífeyrissparnað til að stíga fyrsta skrefið inn á fasteignamarkaðinn.

Allir velkomnir og boðið verður upp á léttar veitingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira