21.11.2017
Fræðslufundir um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði
Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opinna fræðslufunda í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum.
Á fundunum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:
Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
Fundirnir standa yfir í rúma klukkustund og verða haldnir sem hér segir:
Reykjavík, 21. nóvember kl. 17.30 í Arion banka, Borgartúni 19
Egilsstöðum, 6. desember kl. 17 í sal Hótels Valaskjálf, Skógarlöndum 3
Akureyri, 18. janúar kl. 17.30 í aðalbyggingu Háskólans á Akureyri
Fræðslufundurinn í Reykjavík verður einnig sendur út í beinni útsendingu á Facebook-síðu Arion banka.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar og við bjóðum ykkur öll velkomin.
Skráning á fræðslufundina