14.02.2024
Fræðslufundur
Fræðslufundi um Lífeyrisauka, viðbótarlífeyrissparnað Arion, verður streymt á Facebook síðu Arion banka miðvikudaginn 21. febrúar kl. 12:00. Fundurinn er fyrir sjóðfélaga og aðra áhugasama um málefni sjóðsins.
Í pallborði verða Guðmundur Thorlacius Ragnarsson, rekstrarstjóri Lífeyrisauka og Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion. Umræðum stýrir Ásdís Karen Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion.
Umræðupunktar:
Helstu kostir viðbótarlífeyrissparnaðar
Sérstaða Lífeyrisauka
Fjárfestingarleiðir Lífeyrisauka
Þróun markaða og ávöxtun Lífeyrisauka
Aðgerðir og yfirsýn í Arion appinu
Fundurinn stendur yfir í um 20 mínútur.
Vakin er athygli á að einnig verður fræðslufundi streymt á ensku á Facebook síðu Arion banka samdægurs kl. 12:30.