11.02.2019
Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði
Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni bjóðum við til opins fræðslufundar í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 17:30.
Á fundinum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:
Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
Mikilvægi þess að fólk á miðjum aldri hugi vel að söfnun lífeyrissparnaðar
Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.
Allir velkomnir.