24.06.2021

Fram­lenging á ráð­stöf­un sér­eignar­sparnaðar inn á höfuð­stól láns

Þeir sjóðfélagar sem hafa nýtt sér úrræðið um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól láns, sem gilda átti til 30. júní 2021 geta nú sótt um framlengingu á því til lok júní 2023. Þeir sem hafa áhuga á því að nýta sér úrræðið áfram þurfa að skrá sig inn á vef Ríkisskattstjóra, www.leidretting.is og staðfesta afstöðu sína fyrir 30. september 2021. Ef ekki er óskað eftir framlengingu fellur umsókn úr gildi frá og með 1. júlí 2021 og engar frekari greiðslur berast inn á lán.

Athugið, þetta á ekki við um einstaklinga sem eru í úrræðinu „fyrsta íbúð“.

​Þeir sem ekki staðfesta afstöðu sína fyrir ofangreindan tíma geta þó hafið ráðstöfun að nýju með nýrri umsókn á tímabilinu en sú umsókn gildir þá einungis frá þeim mánuði sem hún berst RSK.

Smelltu hér til að skoða nánari upplýsingar um framlenginguna á vefsvæði RSK


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira