02.09.2022

Frest­un vaxta­breyt­inga frá 28. júní

Vaxtahækkun óverðtryggðra neytendalána með breytilegum vöxtum sem taka átti gildi 29. júlí síðastliðinn mun ekki taka gildi fyrr en 25. september næstkomandi. Frestunin nær fyrst og fremst til íbúðalána, bílalána og lána sem bera kjörvexti. Viðskiptavinum með óverðtryggð neytendalán með breytilega vexti hefur verið tilkynnt um þessa frestun á hækkun vaxta.

Frestunin er tilkomin vegna þess að þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um 1 prósentustigs vaxtahækkun á vef bankans 28. júní sl., sem átti að taka gildi 30 dögum síðar, misfórst að tilkynna viðskiptavinum um breytinguna með beinum hætti. Því mun bankinn fresta vaxtahækkuninni og endurgreiða ofgreidda vexti en ofgreiddir vextir ná aðeins til þriggja síðustu daga júlímánaðar.

Einstaklingar með lán hjá Arion banka sem bera óverðtryggða breytilega vexti munu því greiða einu prósentustigi lægri vexti en þeir hefðu annars gert frá 29. júlí til 25. september.

Í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 24. ágúst sl. um að hækka stýrivexti um 0,75 prósentustig eru frekari breytingar á vöxtum Arion banka til skoðunar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira