22.04.2024

Frí­dag­ar fram und­an

Að gefnu tilefni minnum við á að fram undan eru nokkrir almennir frídagar þar sem bæði þjónustuver og útibú Arion banka verða lokuð.

Dagsetningarnar, sem um ræðir, eru eftirfarandi:

  • Fimmtudagur 25. apríl – Sumardagurinn fyrsti

  • Miðvikudagur 1. maí – Baráttudagur verkalýðsins

  • Fimmtudagur 9. maí – Uppstigningardagur

  • Mánudagur 20. maí – Annar í Hvítasunnu

  • Mánudagur 17. júní – Þjóðahátíðardagur Íslendinga

  • Mánudagur 5. ágúst – Frídagur verzlunarmanna

Komi upp neyðartilvik í tengslum við kortamál má hafa samband við neyðarþjónustu sem opin er allan sólarhringinn. Til að komast í samband við neyðarþjónustuna er fyrst hringt í almennt símanúmer Arion banka, 444 7000, og talan 5 síðan valin í símsvaranum.

Í tilvikum sem tengjast hugsanlegum svikum má senda skeyti á póstfangið netsvik@arionbanki.is. Starfsfólk bankans vaktar það netfang og svarar fyrirspurnum skjótt og örugglega alla virka daga frá kl. 9-22 en um helgar og hátíðisdaga frá kl. 10-22.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira