17.11.2023

Frið­rik Ár­sæls­son ráð­inn for­stöðu­maður lög­fræði­ráð­gjaf­ar Arion banka

Friðrik Ársælsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka og er um nýja stöðu að ræða innan bankans. Lögfræðiráðgjöf heyrir undir nýjasta svið bankans, rekstur og menningu.

Friðrik hefur starfað í lögfræðiráðgjöf Arion banka frá árinu 2019, síðast sem aðstoðaryfirlögfræðingur. Þar áður var Friðrik eigandi á lögmannsstofunni Réttur og sat í stjórn Fjármálaeftirlitsins á árunum 2014-2019. Hann er aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands og hefur m.a. annast kennslu í félagarétti, fjármálamarkaðsrétti og verið leiðbeinandi fjölda meistararitgerða við skólann. Friðrik er með meistaragráðu í félaga- og verðbréfamarkaðsrétti frá Harvard Law School og lögfræðigráðu frá Háskóla Íslands.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira