11.12.2017
Frjálsi er besti lífeyrissjóður lítilla Evrópuþjóða
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var á dögunum valinn besti lífeyrissjóður Evrópuþjóða með færri en eina milljón íbúa af fagtímaritinu Investment Pension Europe. Tímaritið, sem er eitt það virtasta tímarit um lífeyrismál í Evrópu, stendur fyrir valinu á ári hverju. Þetta eru elleftu verðlaunin sem Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur fengið frá IPE frá árinu 2005 en það er mesti fjöldi verðlauna sem íslenskum lífeyrissjóði hefur hlotnast.
Í umsögn dómnefndar kom meðal annars fram að kannanir sýni ánægju sjóðfélaga með rekstur og þjónustu sjóðsins og að fyrirkomulag sjóðsins að ráðstafa skylduiðgjaldi í samtryggingu og séreign bjóði upp á sveigjanlega útgreiðslumöguleika.
Ávöxtun sjóðsins hefur verið mjög góð sl. 12 mánuði:
Nafnávöxtun
Raunávöxtun
Frjálsi 1
7,4%
5,5%
Frjálsi 2
7,1%
5,2%
Frjálsi 3
7,0%
5,1%
Frjálsi áhætta
6,3%
4,4%
Sjóðfélagar Frjálsa lífeyrissjóðsins eru rúmlega 55 þúsund og eignir sjóðsins rúmlega 200 milljarðar króna. Sjóðurinn er einn fárra lífeyrissjóða sem býður sjóðfélögum að ráðstafa hluta af 12% skylduiðgjaldi sínu í séreignarsjóð. Frjálsi hentar bæði þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skylduiðgjald og þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.