05.12.2016

Frjálsi lífeyris­sjóðurinn til­nefnd­ur sem besti lífeyris­sjóður Evr­ópu

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur í þriðja sinn verið valinn besti lífeyrissjóður meðal þjóða með færri en eina milljón íbúa af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE), en þeim verðlaunum deildi hann þetta árið með öðrum íslenskum lífeyrissjóði. Jafnframt var Frjálsi lífeyrissjóðurinn tilnefndur sem besti lífeyrissjóður Evrópu og var það í fyrsta sinn sem sjóðurinn hefur fengið slíka tilnefningu.

Frá árinu 2005 hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn fengið 10 verðlaun frá IPE sem er mesti fjöldi verðlauna sem íslenskum lífeyrissjóði hefur hlotnast. Jón Guðni Kristjánsson, stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum, veitti verðlaununum viðtöku.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er með tæplega 55 þúsund sjóðfélaga og eru eignir sjóðsins um 180 milljarðar. Sjóðurinn er einn fárra lífeyrissjóða sem býður sjóðfélögum að ráðstafa hluta af 12% skylduiðgjaldi sínu í séreignarsjóð. Hann hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skylduiðgjald og jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.

Investment Pension Europe (IPE) er eitt virtasta tímarit í Evrópu um lífeyrismál. Tímaritið veitir þeim lífeyrissjóðum verðlaun sem að mati dómnefndar IPE hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu. Breski lífeyrissjóðurinn NEST var valinn besti lífeyrissjóður Evrópu að þessu sinni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira