15.05.2020

Fyrir­tækið Dyngja var val­ið fyrir­tæki ársins 2020 í keppni Ungra frum­kvöðla

Fyrirtækið Dyngja, sem er í eigu nemenda við Verslunarskóla Íslands, var valið fyrirtæki ársins 2020 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi sem fram fór í síðustu viku. Fyrirtækið mun keppa fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fram fer í Cascais í Portúgal dagana 22.-24. júlí 2020. Vegna COVID-19 ástandsins verður keppnin haldin með óhefðbundnu sniði í ár og fer fram með rafrænum hætti.

Tuttugu og fimm fyrirtæki frá fimmtán framhaldsskólum voru valin úr hópi 109 fyrirtækja til að taka þátt í úrslitum Ungra frumkvöðla 2020.

Eftirfarandi fyrirtæki hlutu verðlaun:

  • Fyrirtæki ársins 2020: Dyngja - Verslunarskóli Íslands

  • Fyrirtæki ársins - 2. sæti: Piskís - Verslunarskóli Íslands

  • Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Draumaljós - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • Mesta nýsköpunin: Skín - Kvennaskólinn í Reykjavík

  • Besta fjármálalausnin: Dyngja - Verslunarskóli Íslands

  • Besti Sjó-Bisnessinn: Hulur - Borgarholtsskóli

  • Samfélagsleg nýsköpun: Rætur - Verslunarskóli Íslands

  • Besta hönnunin: Kusari - Menntaskólinn við Sund

  • Besta tæknilausnin: iQroll - Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

  • Umhverfisvænasta lausnin: Vösk - Verslunarskóli Íslands

  • Bestu markaðsmálin: Koley - Menntaskólinn við Sund

  • Besta matvælafyrirtækið: MYSEY - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Samtökin hafa það hlutverk að búa ungt fólk undir framtíðina og auka færni þess til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í framhaldsskólum. Þannig er frumkvöðlastarf kynnt fyrir framhaldsskólanemum með það að markmiði að efla frumkvöðlaanda meðal ungmenna og þjálfa frumkvöðla framtíðarinnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira