18.05.2021

Fyrir­tækið Hrauney val­ið fyrir­tæki ársins 2021 í Fyrir­tækja­smiðju Ungra frum­kvöðla

Fyrirtækið Hrauney, sem er í eigu sex nemenda við Verslunarskóla Íslands, var valið fyrirtæki ársins 2021 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Mun Hrauney keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fram fer í Vilnius, Litháen dagana 13.-15. júlí 2021. Arion banki er einn af stuðningsaðilum JA á Íslandi of fóru viðtöl dómara við fulltrúa fyrirtækjanna fram í Arion banka sem og afhending verðlauna og viðurkenninga.

30 fyrirtæki frá 15 framhaldsskólum, voru valin úr hópi 126 fyrirtækja, til að taka þátt í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2021.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti eftirfarandi verðlaun:

  • Fyrirtæki ársins 2021: Hrauney - Verslunarskóli Íslands

  • Fyrirtæki ársins - 2. sæti: MARÍ•GULL - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Stund - Borgarholtsskóli

  • Áhugaverðasta nýsköpunin: Báru Bræður - Menntaskólinn á Ásbrú

  • Besta fjármálalausnin: Heimaleit - Verslunarskóli Íslands

  • Besti Sjó-Bissnessinn: MARÍ•GULL - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • Samfélagsleg nýsköpun: Styrkleiki - Fjölbrautaskólinn við Ármúla

  • Besta hönnunin: Jama - Menntaskólinn við Hamrahlíð

  • Besta tæknilausnin: Black Sky Games - Menntaskólinn á Ásbrú

  • Umhverfisvænasta lausnin: Lína - Borgarholtsskóla

  • Bestu markaðsmálin: TABIK - Verslunarskóli Íslands

  • Besta matvælafyrirtækið: HAWT - Menntaskólinn í Kópavogi

Einnig fengu eftirfarandi fyrirtæki viðurkenningu fyrir að vera meðal 30 efstu fyrirtækjanna (verðlaunahafarnir einnig):

  • Aría - Verslunarskóli Íslands

  • Culinity - Tækniskólinn

  • Focuz ehf. – Menntskólinn við Hamrahlíð

  • Gjá - Verslunarskóli Íslands

  • Glóey - Menntaskólinn við Sund

  • Hreggviður Hönnun - Menntaskólinn í Kópavogi

  • Hylja - Menntaskólinn við Sund

  • Mýkt - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • YRK - Tækniskólinn

  • Æviskeið - Menntaskólinn við Sund

  • GESRA EHF. - Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

  • Glitra - Verslunarskóli Íslands

  • Kalm JA - Verslunarskóli Íslands

  • Kaprí - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • Kvika kerti - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • RóTe - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • SKAÐI - Verslunarskóli Íslands

  • Summa - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

  • ÞANG - Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Um Unga frumkvöðla - Junior Achievement

Junior Achievement (JA) eru 102 ára alþjóðleg félagasamtök sem starfa á heimsvísu en verkefni á vegum samtakanna snerta meira en tólf milljónir nemenda á ári hverju í 123 löndum, þar af yfir fjórar milljónir nemenda í 40 Evrópulöndum. Samtökin leitast við að undirbúa ungt fólk fyrir framtíðina og auka færni þeirra til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í skólum. JA á Íslandi er þátttakandi í JA á heimsvísu.

Stjórn Ungra frumkvöðla -JA Iceland skipa: Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir forstöðumaður Samkeppnishæfnisviðs Samtaka Atvinnulífsins, stjórnarformaður, Benedikt Gíslason forstjóri Arion banka, Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar, Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Lilju Daggar Alfreðsdóttur, Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Þór Sigfússon, forstjóri Sjávarklasans, Ari Kristinn Jónsson, Rektor HR og Sigríður Ingvarsdóttir forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

/Mynd 1 - Frá vinstri: Petra Bragadóttir framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla, Tinna Björg Ólafsdóttir sölustýra, María Valgarðsdóttir hönnunarstýra, Anna Alexandra Petersen fjármálastýra, Sara Ellertsdóttir markaðs- og kynningarstýra, Laufey Jökulsdóttir framkvæmdastýra, Björn Jón Bragason kennari Verslunarskóla Íslands. Á myndina vantar Sif Þórsdóttur framleiðslustýru.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira