05.09.2017

Get­ur þú ver­ið #plast­laus í sept­em­ber?

Árvekniátakið Plastlaus september er nú haldið í fyrsta sinn og hófst þann 1. september. Tilgangur átaksins er að vekja neytendur til umhugsunar um plastnotkun og allan þann plastúrgang sem daglega fellur til. Markmiðið er að leita leiða til að draga úr plastnotkun.

Plast brotnar á löngum tíma niður í smærri einingar en eyðist ekki og því má í raun segja að allt plast sem framleitt hefur verið sé ennþá til í einhverri mynd. Plastlaus september hvetur okkur til að kaupa minna af einnota plasti, hvort sem við kjósum að taka þátt í einn dag, eina viku, heilan mánuð eða jafnvel til frambúðar.

Arion banki er stoltur styrktaraðili átaksins en bankinn hefur að undanförnu stigið ýmis skref með það að markmiði að draga úr plastnotkun og vernda umhverfið. Þau skref eru til dæmis:

  • Fjölnota innkaupapokar fyrir starfsfólk og viðskiptavini

  • Bréfpokar úr endurunnum pappír í stað plastpoka í útibúum Arion banka

  • Kúlupennar úr endurunnu plasti í stað einnota plasts

  • Glerflöskur í stað plastflaskna í fundarherbergjum í höfuðstöðvum bankans

Við hjá Arion banka munum halda áfram á sömu braut en aðgerðir starfsfólks og viðskiptavina skipta sömuleiðis höfuðmáli. Við hvetjum til umhugsunar og aðgerða til að draga úr notkun einnota plasts og minnum einnig á mikilvægi þess að flokka það plast sem fellur til og koma því til endurvinnslu.

Nánari upplýsingar um átakið

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira