23.02.2024

Góð ráð til að greiða sem minnst vegna korta­notk­un­ar

Greiðslukort eru þægileg og handhæg leið til að greiða fyrir vörur og þjónustu og fá góða yfirsýn yfir eyðslu hvers mánaðar. Einnig fylgir þeim ákveðið öryggi eins og endurkröfuréttur. Hér eru nokkur ráð sem korthafar Arion banka geta nýtt til að minnka kostnað vegna notkunar þeirra.

Veldu alltaf kreditkort sem hentar þér. Ef þú ferðast oft og út fyrir Evrópu viltu líklega kort með góðri tryggingavernd en ef þú ferðast sjaldan eru kort með minni tryggingavernd og ódýrara árgjaldi kostur sem vert er að skoða. Vertu líka viss um að geta nýtt þér fríðindin sem kortið býður upp á. Ekki borga fyrir fríðindi sem þú munt ekki nýta.

Ef þú ferðast lítið eða aldrei en vilt versla á netinu er snjallt að fá sér Netkort sem er einungis fyrir verslun á netinu og án árgjalds.

Það getur verið sniðugt að nota kreditkort í alla daglega neyslu og setja föst útgjöld og áskriftir á það. Engin færslugjöld eru greidd og korthafinn þarf ekki að nota sinn pening strax þar sem bankinn fjármagnar úttektina fram að gjalddaga reiknings. Að auki eru fríðindi oft tengd veltu kortsins og geta komið sér vel.

Ef þig vantar reiðufé innanlands mælum við með því að nota debetkortið og hraðbanka Arion banka. Ekkert gjald er tekið af slíkum úttektum.

Erlendis er almennt öruggara og ódýrara að nota kort til að versla í stað reiðufjár en ef taka þarf út reiðufé er betra að nota debetkortið. Athugaðu þó að ódýrara er að taka stærri upphæð út í einni færslu en margar litlar þar sem lágmarksþóknun er tekin fyrir hverja úttekt.

Að lokum er það spurningin hvort betra er að versla með debetkorti eða kreditkorti erlendis. Svarið er oftast með kreditkorti. Þegar þú notar kreditkortið greiðirðu gjaldeyrisálag sem er eilítið hærra en á debetkortinu en í staðinn færðu fjármögnun fram að gjalddaga reiknings og í mörgum tilvikum ýmis fríðindi.

Athugaðu að stundum getur þú valið að greiða í íslenskum krónum þegar verslað er erlendis. Berðu saman kjörin áður en þú ákveður í hvaða mynt viðskiptin eiga að fara fram, því oftast er hagkvæmara að versla í erlendu myntinni. Þetta getur átt við bæði þegar við erum stödd erlendis en einnig í netviðskiptum.

Um kortagjöld bankans

Árgjald debetkorta er 950 krónur en þeim fylgja engin viðbótarfríðindi. Árgjald kreditkorta er hins vegar misjafnt, allt frá 0 krónum til 41.900 króna, allt eftir tegund korts, tryggingavernd og fríðindum sem kortin veita.

Þannig er ferðatrygging innifalin í árgjaldi kreditkorta en hún er mikilvægur öryggisþáttur sem reynst hefur korthöfum vel í áranna rás. Einnig fást ýmis önnur fríðindi með kortunum, mismikil eftir upphæð árgjaldsins.

Almennt er það svo að stærsti hluti gjalda vegna kortanotkunar fer í rekstur kortakerfa, stafrænar lausnir og aðildagjöld til alþjóðlegu kortafyrirtækjanna. Að auki hafa korthafar Arion banka aðgang að 24/7 neyðarþjónustu sem er mjög mikilvægur öryggisþáttur, sér í lagi á ferðalögum en einnig ef upp kemur grunur um kortasvik. Bankinn kaupir neyðarþjónustu af þriðja aðila auk þess að vera með starfsfólk á sérstakri svikavakt um kvöld og helgar.

Færslur innanlands

Hver færsla með debetkorti kostar 19 krónur fyrir þá sem eru 24 ára eða eldri en er ókeypis fyrir þá sem eru 23 ára eða yngri. Engin færslugjöld eru hins vegar tekin af kreditkortum þrátt fyrir að bankinn fjármagni úttektir í allt að 38 daga.

Úttekt úr hraðbanka er ókeypis með debetkorti en ef tekið er út úr hraðbanka með kreditkorti þá er fast gjald 130 krónur og svo 2,2% álag. Sumir hraðbankar taka að auki gjald sé úttektin gerð með korti sem er ekki frá þeim.

Færslur erlendis

Þegar verslað er í erlendri mynt greiða korthafar bankanum gjaldeyrisálag, 2,5% á debetkortum og 2,7% á kreditkortum. Álagið er aðeins hærra á kreditkortum þar sem bankinn fjármagnar þær færslur fram að gjalddaga kortsins. Ef korthafi velur að greiða í íslenskum krónum í stað erlendrar myntar er ekki um neitt álag að ræða að hálfu bankans en þá ákveður söluaðili álagið sem oftast er hærra en álag bankans.

Þegar tekið er út reiðufé í hraðbanka er greidd þóknun en hluti hennar rennur til rekstraraðila hraðbankans í landinu þar sem reiðufé er tekið út. Eins og hér á landi er dýrara að taka út reiðufé með kreditkorti. Það kostar 2,75% en að lágmarki 820 krónur. Úttekt með debetkorti kostar hins vegar 1% eða að lágmarki 790 krónur.

Hér má sjá töflu yfir helstu gjaldaliði bankans sem tengjast kortum:

Tegund
korts

Færslugjald

Árgjald

Hraðbankaþóknun
innanlands

Hraðbankaþóknun
erlendis

Gjaldeyrisálag

Debetkort 23 ára og yngri

0 kr.

0 kr.

0 kr.

1% að lágmarki
790 kr.

2,50%

Debetkort 24 ára og eldri

19 kr.

950 kr.

0 kr.

1% að lágmarki
790 kr.

2,50%

Kreditkort

0 kr.

0 kr. - 41.900 kr.
Innifalið í árgjaldi er ferðatrygging* og neyðarþjónusta allan sólarhringinn auk annarra fríðinda sem eru misjöfn eftir kortategund.

*Ferðatryggingar fylgja ekki Netkorti og Innkaupakorti.

2,20% + 130 kr.

2,75% að lágmarki
820 kr.

2,70%

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira