29.08.2024

Góð stemning í ís­lenska hópn­um á Para­lympics 2024

Paralympics leikarnir í París fara fram dagana 28. ágúst - 8. september. Fimm afreksmenn keppa fyrir Íslands hönd og er Róbert Ísak Jónsson þar á meðal en hann syndir 100 m flugsund. Fyrr í dag stimplaði hann sig rækilega til leiks þegar hann komst í úrslit í sinni grein – en við heyrðum í honum hljóðið rétt áður en leikarnir fóru af stað.

Hvernig er stemningin í hópnum hjá ykkur?

„Heyrðu, bara mjög fín,“ segir Róbert. „Fólk hegðar sér vel – allavega enn. Mikill spenningur auðvitað.“

Róbert keppti sömuleiðis á Paralympics í Tókýó 2020, hafnaði þá í 6. sæti í sinni grein og sló Íslandsmet. Hann kveður stemninguna heldur léttari að þessu sinni: „Já, við erum laus við kóvid-grímurnar! Það er því miklu meiri gleði núna hér í Frakklandi.“

Róbert er Hafnfirðingur í húð og hár og hóf að iðka sund átta ára gamall. Hann hefur nú synt í fimmtán ár og verið í stífum æfingum að undanförnu í aðdraganda mótsins.

„Ég æfi þrettán sinnum í viku meðan á undirbúningnum stendur; syndi tíu sinnum og tek þrjár lyftingaæfingar. Svo huga ég vel að mataræðinu og held nákvæma skrá yfir kaloríuinntöku í appi.“ Árangurinn kemur auðvitað ekki af sjálfu sér.

Það er bjart yfir okkar manni sem kveðst hlakka til að keppa. Við vonum að hann fái notið verunnar í Parísarborg og komist jafnvel út að borða að lokinni keppni án þess að þurfa að telja kaloríurnar? Hann hlær og segir að það sé vissulega stefnan.

Hinir keppendurnir eru þau Ingeborg Eide Garðarsdóttir (kúluvarp), Már Gunnarsson (100 m baksund), Sonja Sigurðardóttir (50 m baksund) og Thelma Björg Björnsdóttir (100 m bringusund).

Áratuga farsælt samstarf ÍF og Arion

Íþróttasamband fatlaðra og Arion banki hafa átt í farsælu samstarfi áratugum saman eða frá 1. maí 1979 þegar fyrsta krónan sem sambandið eignaðist var lögð inn í gamla Búnaðarbankann. Síðan þá hefur bankinn verið einn af bakhjörlum sambandsins og hefur íþróttafólkið okkar náð ótrúlegum árangri á þeim tíma og unnið til hvorki meira né minna en 98 verðlauna á Paralympics leikunum.

Við hlökkum til að fylgjast með í París 2024 og styðja við bakið á okkar fólki.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira