08.11.2017

Greining­ar­deild Arion banka kynnti nýja hagspá

Greiningardeild Arion banka kynnti í morgun nýja hagspá. Kynningin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, en var einnig sýnd í beinni útsendingu á Facebook-síðu bankans.

Á fundinum fjallaði Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur í greiningardeild, um efnahagshorfur 2017-2020 áður en Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður deildarinnar, tók við með erindinu Frá völlum og höfnum til vega og torga, hver skal herlegheitin borga? Hér fyrir neðan má finna hlekki á kynningarnar.

Í nýrri hagspá greiningardeildarinnar er reiknað með 4,2% hagvexti í ár en að svo taki að hægja á og að hagvöxtur verði milli tvö og þrjú prósent til 2020. Einkaneysla mun draga vagninn út spátímann en einnig verður nokkur fjárfesting, samkvæmt spánni. Þá er einnig gert ráð fyrir að ferðaþjónusta muni áfram vaxa, þó hægar en áður og að sterk króna og mikill kaupmáttur muni styðja við áframhaldandi innflutningsvöxt

Þá bendir spá greiningardeildar á að nauðsynlegt sé og vilji standi til, að fjárfesta af auknum krafti í innviðum. Arðgreiðslur úr bönkunum geti hjálpað ríkinu við fjármögnun slíkra verkefna en þær dragi um leið úr getu ríkisins til að greiða niður skuldir. Skoða þurfi fleiri leiðir til fjármögnunar, skilgreina hlutverk einkaaðila og hvaða verkefni megi fjármagna með notendagjöldum.

Efnahagshorfur 2017-2020

Frá völlum og höfnum til vega og torga, hver skal herlegheitin borga?

Upptaka frá fundinum á Facebook-síðu Arion banka

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira