03.12.2025

Gríðar­mik­ill áhugi á fjár­festingar­keppn­um fram­halds­skól­anna og há­skól­anna

Í október héldum við tvær fjárfestingarkeppnir, annars vegar fyrir framhaldsskólanema og hins vegar háskólanema. Samtals tóku hátt í 1000 nemendur þátt í keppnunum. Kynjahlutföllin voru 27% konur og 72% karlar.

Sigurvegari háskólakeppninnar ávaxtaði sína upphæð, samtals tíu milljónir króna, um rúmar þrjár milljónir króna á þeim mánuði sem keppnin stóð yfir. Keypti hann meðal annars í hlutafélögunum Amaroq Ltd, Alvotech, Hampiðjunni og Festi.

Sigurvegari framhaldsskólakeppninnar ávaxtaði upphæðina sína um rúmar 1,6 milljónir. Þar skilaði Oculus Holdings AG honum sigrinum - en hann tók sénsinn og setti alla upphæðina sína á það félag.

Efri röð frá vinstri: Alexander Sigurðarson, Ingvar Atli, Vilhjálmur Geirsson og Daníel Árnason. Neðri röð frá vinstri: Magnús Benediktsson, Óliver Orri Bergmann, Pétur Rúnarsson, Alexander Jónsson og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.

Háskólakeppni - sigurvegarar:
  1. Alexander Jónsson (HR)

  2. Daniel Árnason (HR)

  3. Ingvar Atli (HÍ)

Frá vinstri: Alexander Sigurðarson, einn af eigendum Dyngju, Magnús Benediktsson, einn af eigendum Dyngju, Daníel Árnason 2.sæti, Alexander Jónsson 1.sæti, Ingvar Atli 3.sæti og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.

Framhaldsskólakeppni - sigurvegarar:
  1. Pétur Rúnarsson (Flensborg)

  2. Óliver Orri Bergmann (Verzló)

  3. Vilhjálmur Geirsson (Verzló)

Frá vinstri: Óliver Orri Bergmann 2.sæti, Pétur Rúnarsson 1.sæti, Vilhjálmur Geirsson 3. sæti og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira