14.11.2023

Grinda­vík

Hugur okkar allra er hjá íbúum Grindavíkur. Það er erfitt að setja sig í spor þeirra sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín við þessar aðstæður.

Við viljum leggja okkar af mörkum til að létta á þeim áhyggjum sem hvíla á íbúum Grindavíkur. Við höfum því boðið viðskiptavinum okkar úr Grindavík þriggja mánaða greiðslufrest á íbúðalánum sínum hjá Arion. Um hefðbundna frystingu er að ræða þar sem vextir og verðbætur leggjast á höfuðstól. Enginn kostnaður fylgir frystingunni.

Að auki hefur Vörður, dótturfélag Arion, haft samband við sína viðskiptavini í Grindavík og tilkynnt þeim að félagið mun fella niður iðgjöld af tryggingum þeirra í desember.

Við munum á næstu dögum og vikum meta þörfina fyrir frekari úrræði og við hvetjum þá sem vilja fá frekari upplýsingar til að setja sig í samband við okkur.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira