17.09.2026

Hægt að fjárfesta í er­lend­um vísi­tölu­sjóð­um í Arion app­inu

Nú er hægt að eiga viðskipti með erlenda vísitölusjóði beint í Arion appinu og netbankanum. Með þessari nýjung fæst greiður aðgangur að sjóðum sem starfa á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og tækifæri til að dreifa áhættu í sparnaði með hagkvæmum og einföldum hætti.

Vísitölusjóðir eru verðbréfasjóðir sem fylgja tiltekinni vísitölu og hafa að geyma hlutabréf þeirra fyrirtækja sem mynda vísitöluna í sömu hlutföllum og vísitalan. Þannig stuðla vísitölusjóðir að meiri áhættudreifingu en þegar fjárfest er í einstökum hlutabréfum.

Vísitölusjóðirnir sem nú er hægt að eiga viðskipti með í Arion appinu og netbankanum eru fjórir og spanna vísitölur ólíkra markaðssvæða. Einn sjóðurinn er alþjóðlegur og fylgir heimsvísitölu hlutabréfa, hinir þrír taka fyrir ákveðin markaðssvæði heimsins; einn horfir eingöngu til stærstu skráðu fyrirtækja Bandaríkjanna, annar til evrópskra fyrirtækja og sá þriðji til nýmarkaðsríkja.

Viðskipti með sjóðina fara fram á sama hátt og önnur sjóðaviðskipti í Arion appinu og netbankanum. Einnig er hægt að fjárfesta í sjóðunum með reglulegum sparnaði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira