01.11.2016

Hagspá 2016-2019: Fljúgum ekki of ná­lægt sól­inni

Greiningardeild kynnti í morgun nýja hagspá fyrir árin 2016-2019. Í hagspánni er gert ráð fyrir kröftugum hagvexti í ár og á næsta ári, eða 4,7% og 5,2%, en að hægja taki á vextinum þegar fram í sækir. Sem fyrr verði hagvöxturinn drifinn áfram af einkaneyslu og fjárfestingu. Greiningardeildin gerir ráð fyrir því að einkaneyslan muni draga vagninn, studd áfram af háu atvinnustigi og kaupmáttaraukningu. Sviðsmyndargreining sýnir að áframhaldandi styrking krónunnar mun leiða til aukinnar innlendrar eftirspurnar, halla á viðskiptajöfnuði og minni hagvaxtar.

Krónan hefur styrkst um 15% á árinu, einkum á síðustu vikum. Að mati Greiningardeildar er krónan allt að 10% sterkari en staðist getur til lengri tíma. Þó eru sterkar vísbendingar um að krónan muni styrkjast áfram á næstu mánuðum, sem mun að öllum líkindum grafa undan gengi hennar síðar.

Hér má sjá kynningarnar frá því á fundinum:

Hagspá - Efnahagshorfur 2016-2019
Hagspá - Hversu sterk getur krónan orðið

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira