29.10.2018

Hagspá fyrir ár­in 2018-2021: Sett í lága drifið

Greiningardeild Arion banka kynnti í dag nýja hagspá fyrir árin 2018-2021, undir yfirskriftinni Sett í lága drifið. Þar kom meðal annars fram að eftir sterkan fyrri árshelming 2018 sé útlit fyrir að hagkerfið snöggkólni. Reiknað er með að hratt hægi á hagvexti og að hann verði 1,3% á næsta ári. Sem fyrr muni einkaneysla og fjárfesting draga vagninn, á meðan utanríkisverslun leggi sömuleiðis sitt af mörkum.

Í hagspánni kemur fram að óvissan um efnahagshorfur hafi aukist að undanförnu og hafi það endurspeglast í snarpri gengisveikingu, stígandi verðbólguvæntingum og aukinni svartsýni. Helstu áhættuþættir um þessar mundir eru, að mati Greiningardeildarinnar, spenna á vinnumarkaði og staða ferðaþjónustunnar. Spáð er launahækkunum umfram það sem samrýmist verðstöðugleika og lítilsháttar vexti í komum ferðamanna. Þrátt fyrir spá um minniháttar gengisstyrkingu á næsta ári spáir Greiningardeildin því að krónan muni veikjast eftir því sem líður á spátímann og að verðbólga verði yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans.

Efnahagshorfur 2018-2021

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira