27.10.2025

Hag­ur fyrir­tækja að hafa trygging­a- og banka­þjónustu á ein­um og sama stað

Einn akkur fyrirtækja af því að vera í þjónustu hjá Arion samstæðunni er aðgengi að alhliða fjármálaþjónustu, þar með talið öflugri tryggingaráðgjöf. Gildir þá einu hvort fyrirtækið er stórt eða lítið og verkefnin einföld eða viðamikil. Starfsfólk okkar býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu enda þjónustum við tugþúsundir fyrirtækja og stofnana.

Markmiðið að styðja þétt við fyrirtækin í landinu

„Markmið okkar er einfalt. Við hjálpum til við uppbyggingu öflugra fyrirtækja sem stuðla að krafti í samfélaginu og íslensku atvinnulífi. Það gerum við með því að standa með okkar viðskiptavinum, skilja þarfir þeirra og auðvelda banka- og tryggingarviðskipti,“ segir Hákon Hrafn Gröndal, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs.

„Fyrirtæki gegna lykilhlutverki í að skapa hagvöxt og velsæld hér á Íslandi og það skiptir okkur því miklu máli að eiga í nánu samtali við þau, skilja áskoranir þeirra og tækifæri. Að geta veitt fyrirtækjum öfluga tryggingavernd auk fjölbreyttrar fjármálaþjónustu, allt undir sama þaki, skiptir sköpum og það auðveldar fyrirtækjum reksturinn á skilvirkan og öruggan hátt. Því spyrjum við okkar viðskiptavini reglulega: Er allt sem skiptir máli tryggt?

„Þegar fyrirtækjaeigendur vita að þau eru rétt tryggð og hafa aðgang að lausnum sem henta rekstrinum, þá skapast rými til að einbeita sér að því sem skiptir máli, sem er að byggja upp og þróa sína starfsemi,“ segir Hákon.

Mikilvægt að hafa réttar tryggingar

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, tekur í sama streng.

„Þau fyrirtæki, sem tryggja sig hjá Verði og eru líka í viðskiptum við Arion banka, hafa mikinn hag af því að Arion samstæðan skilur heildarþarfir þeirra. Lykillinn að góðri þjónustu okkar við fyrirtækin er frábær mannauður, samansafn af reynslumiklu fólki úr fjölbreyttum geirum. Við leggjum áherslu á að veita alltaf framúrskarandi þjónustu, hvort sem fyrirtæki vantar fjármálaráðgjöf, forvarnarúttekt eða tjónaþjónustu.“

Guðbjörg Heiða leggur áherslu á að Vörður vilji mæta raunverulegum þörfum fyrirtækja og að tryggingaverndin sé sniðin að rekstri þeirra hverju sinni.

„Við viljum vinna með okkar fyrirtækjum og passa upp á það með þeim að þau séu rétt tryggð á hverjum tímapunkti.“

Skynsamlegt sé að yfirfara tryggingarnar árlega því margt getur breyst á stuttum tíma; tækjabúnaður er uppfærður, velta hefur aukist, starfsfólki fjölgar eða fækkar og svo framvegis. Þar komi tryggingasérfræðingarnir okkar sterkir inn og geti liðsinnt fyrirtækjunum við að meta tryggingaþörfina.

„Við setjum mikið púður í forvarnarstarfið okkar, enda sameiginlegur hagur allra að lágmarka líkur á tjóni. Sérfræðingarnir okkar í forvörnum heimsækja fyrirtækin, taka út öryggisatriði og veita þeim faglega forvarnarráðgjöf.“

Þarft þú að uppfæra tryggingarnar hjá þínu fyrirtæki?

Öll fyrirtæki þurfa að vera með lögboðnar tryggingar. Einnig er mikilvægt að huga að sérsniðnum tryggingum fyrir hvert rekstrarform sem ver fyrirtæki fyrir ýmsum áföllum sem geta komið upp í rekstri, s.s. ef rekstrarstöðvun verður, vörur eru í flutningum eða slys- eða sjúkdómar koma upp hjá starfsfólki, svo að fátt eitt sé nefnt. Við getum aðstoðað fjármálstjórann með allt þetta og fleira til.

Sendið á okkur línu í netspjalli eða tölvupóst á fyrirtaeki@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
06. júlí 2026

Árangur í áratug

Arion appið hefur verið valið besta bankaappið af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu – tíunda árið í röð.

Um leið og við þökkum viðskiptavinum hjartanlega fyrir traustið og hlýhuginn nýtum við viðurkenninguna sem hvatningu til að halda áfram að gera ennþá betur. Við hjá Arion erum virkilega stolt af þeirri glæsilegu vinnu sem farið hefur fram hér innanhúss á síðustu árum. Svona árangur næst ekki næst ekki nema stór hópur metnaðarfulls starfsfólks leggist á árarnar og geri sitt besta, á hverjum einasta degi.

Lesa meira
25. júní 2026

Arion framtíð

Launabónus fyrir ungt fólk, spennandi fríðindi og fjármálafræðsla á mannamáli.

Í apríl 2025 kynnti Arion samstæðan til sögunnar nýtt og öflugt fríðindakerfi, Arion fríðindi, sem miðar að því að hámarka þann ábata sem viðskiptavinir Arion og Varðar hafa af því að nýta sér hina margvíslegu þjónustu Arion samstæðunnar. Þeim mun meiri þjónustu sem viðskiptavinir Arion nýta sér – í bankaviðskiptum, tryggingum, sjóðum og svo framvegis – því meiri fríðindi og sérkjör fá þeir.

Lesa meira
23. júní 2026

Arion banki ráðgjafi í 6,7 milljarða króna hlutafjáraukningu hjá Laxey

Laxey hefur lokið 46,7 milljóna evra hlutafjáraukningu, sem nemur um 6,7 milljörðum króna, til fjármögnunar áframhaldandi uppbyggingar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. 

Lesa meira