26.09.2024

Haust­lægð yf­ir hag­kerf­in­u: Djúp og köld, eða grunn og mild?

Greining Arion banka kynnti í morgun nýja efnahagsspá fyrir árin 2024-2027. Samkvæmt spánni verður þjóðarskútan lengur í ládeyðu en áður var talið. Eftir samdrátt á fyrir hluta ársins er útlit fyrir að hagvöxtur taki við sér á ný, en fari þó hægt af stað og nái aðeins 1,5% árið 2025. Það er nokkuð minni vöxtur en gert var ráð fyrir í síðustu spá, sem má fyrst og fremst rekja til einkaneyslunnar og ferðaþjónustunnar, sem hafa mætt meiri andbyr en áður var reiknað með.

Skammtímahorfurnar draga óneitanlega dám af þéttu taumhaldi peningastefnunnar, bæði á vinnumarkaði þar sem atvinnuleysi fer vaxandi og hvað varðar innlenda eftirspurn. Þá hefur miðlun peningastefnunnar til heimilanna styrkst til muna að undanförnu með hertu aðgengi að verðtryggðum íbúðalánum, og því útlit fyrir að heimilin haldi áfram að rifa seglin og einkaneysla á mann dragist saman. Því til viðbótar á ferðaþjónustan á brattann að sækja en á móti vega bjartar horfur í öðrum „óhefðbundnari“ útflutningsgreinum, s.s. eldi og lyfjaiðnaði.

Það dylst engum að krefjandi tímar eru fram undan og munu næstu misseri vafalaust reyna á þolrifin. Engu að síður teljum við að þjóðarskútan komist í gegnum þessa haustlægð án þess að steyta á skeri og að hagvöxtur glæðist á ný árið 2026, þá drifinn áfram af innlendri eftirspurn og útflutningi, einkum ferðaþjónustunni.

Eins og ævinlega er óvissan mikil. Þó opinber gögn beri það ekki með sér – enn sem komið er – virðist staða ákveðinna hópa fara hratt versnandi. Taumhald peningastefnunnar er þétt og fátt bendir til þess að það muni breytast á næstunni. Það má því vera að hagspá þessi vanmeti áhrifin á fjárfestingu, hagvöxt og atvinnuleysi.

Efnahagshorfur september 2024

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira