12.01.2018

Heild­stæð upplif­un um mán­aða­mót

Arion banki hefur unnið að því að bæta enn frekar upplifun viðskiptavina þegar framkvæmdar eru mánaðarlegar aðgerðir á borð við að greiða reikninga, ráðstafa lausafé, jafna útgjaldatoppa o.s.frv. Markmiðið er að auka yfirsýn viðskiptavina yfir eigin fjármál og hvetja til sparnaðar en einnig að auðvelda dreifingu reikninga þegar þörf er á.

Meðal nýjunga sem eru nú þegar aðgengilegar í netbanka eru einföld leið til að stofna reglulegan sparnað og flýtileiðir til að greiða reikninga, millifæra og greiða inn á kreditkort. Þá hefur forsíða netbankans verið endurbætt og veitir nú skýrari yfirsýn yfir stöðu, veltu, sparnað og komandi afborganir á reikningum. Einnig er nú auðveldara fyrir viðskiptavini að nýta sér aðrar þjónustur sem bankinn býður upp á.

Á næstu dögum bætast við fleiri spennandi nýjungar í Arion appinu sem gera besta bankaappið á Íslandi enn betra.

Þessar nýjungar, líkt og aðrar sem bankinn hefur kynnt á síðustu misserum, eru afrakstur þróunarvinnu Arion banka sem miðar að því að veita viðskiptavinum betri og þægilegri bankaþjónustu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira