31.03.2023

Helga og Hjalti til liðs við fyrir­tækja­ráð­gjöf Arion banka

Helga Lára Hauksdóttir og Hjalti Már Hauksson hafa gengið til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Helga Lára hefur starfað á fjármálamarkaði í tæplega 15 ár, nú síðast hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna þar sem hún sinnti verkefnum sem tengjast eignastýringu og fjárfestingum hér á landi sem og erlendis. Áður vann Helga Lára hjá Arion banka, Kaupþingi og lögmannstofunni Olswang í London. Helga er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með áherslu á viðskipta- og skattarétt.

Hjalti Már hefur starfað hjá Arion banka frá árinu 2010, nú síðast sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði þar sem hann hefur sinnti verkefnum á sviði laxeldis, sjávarútvegs og fasteigna. Áður gegndi Hjalti meðal annars starfi lánastjóra á fyrirtækjasviði og sérfræðings á viðskiptabanksviði. Hjalti Már er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistaragráðu í fjármálahagfræði frá IESE.

Helga Lára Hauksdóttir

Hjalti Már Hauksson

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira