01.07.2025

Helgu­vík kom­in í nýj­ar hendur

Landey ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur undirritað samkomulag við félagið Reykjanes Investment ehf. um kaup þess á fasteignum og lóðum í Helguvík á Reykjanesi þar sem um tíma var starfrækt kísilverksmiðja. Kaupverð er trúnaðarmál.

Um nokkurra ára skeið hefur Arion banki leitað kaupenda að Helguvík með það markmið að þar geti byggst upp annars konar starfsemi. Því er ánægjulegt að nú taki Reykjanes Investment við eignunum en félagið hyggur á þróun á svæðinu og frekari uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í nánu samstarfi við Reykjanesbæ og Reykjaneshafnir.

Reykjans Investment ehf. er byggingar- og þróunarfélag sem leggur áherslu á skapandi og vandaða uppbyggingu á Suðurnesjum. Að baki félaginu standa einkafjárfestar sem eiga það sameiginleg að hafa djúpar rætur á Suðurnesjum.

Sigurgeir Rúnar Jóhannsson, Reykjanes Investment:

„Við hjá Reykjanes Investment erum spennt fyrir því verkefni að þróa og endurskipuleggja þetta frábæra og vel staðsetta svæði, samfélaginu okkar til heilla. Það er einlægt markmið okkar að þarna verði atvinnustarfsemi í sátt við umhverfi sitt sem nýtur góðs af þeim frábæru innviðum sem eru allt í kring, eins og höfninni og flugvellinum, og því kraftmikla samfélagi sem er á Reykjanesi.“

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Helguvíkin er svæði sem getur hýst margvíslega starfsemi og haft jákvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi. Það eru því góð tíðindi að nú taki heimamenn við keflinu, fólk sem þekkir vel til á Reykjanesi og hefur á undanförnum árum sinnt uppbyggingu á svæðinu. Nýir eigendur eru með metnaðarfulla framtíðarsýn og verður spennandi að sjá Helguvík fá nýtt hlutverk.“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar:

„Þetta eru ánægjuleg tímamót fyrir íbúa svæðisins þar sem ákveðinni óvissu um þá starfsemi sem lagt var upp með verður nú vonandi endanlega eytt. Við hlökkum til samtalsins og samstarfsins við nýja eigendur en hagsmunir bæjarins og hafnarinnar fara saman með þeirri uppbyggingu og tækifærum sem kaupin geta leitt af sér.“

Meðfylgjandi er annars vegar mynd sem var tekin við undirritun kaupsamnings Arion banka og Reykjanes Investment. Á myndinni eru f.v. Sigurgeir Rúnar Jóhannsson og Viktoría Hrund Kjartansdóttir frá Reykjanes Investment, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka. Einnig er meðfylgjandi mynd af Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, starfandi bæjarstóra Reykjanesbæjar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira