14.08.2018

Hlut­hafa­fund­ur í Arion banka hf. 5. sept­em­ber 2018

Hluthafafundur í Arion banka hf. verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 5. september 2018, kl. 16:00. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku.

Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
  1. Tillaga um arðgreiðslu til hluthafa bankans

  2. Breyting á stjórn bankans
    Kosning eins nýs stjórnarmanns sem starfi fram að næsta aðalfundi bankans

  3. Kosning tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd

  4. Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd

  5. Tillaga um breytingar á samþykktum
     
    a.
    Lagt er til að ákvæði til bráðabirgða í samþykktum Arion banka hf. sem felur í sér undanþágu frá ákvæðum samþykkta um boðunarfrest til hluthafafunda, verði fellt brott í heild sinni. Samkvæmt ákvæðinu skyldi það falla niður þegar hlutabréf Arion banka hf. yrðu tekin til viðskipta hjá Nasdaq á Íslandi.
     
    b.
    Þá er lagt til að viðauki nr. 1 við samþykktir Arion banka hf. verði felldur brott í heild sinni. Viðauki þessi fjallar um heimild til kaupa á eigin bréfum sem veitt var á hluthafafundi 12. febrúar 2018. Heimild þessi var nýtt í febrúar 2018.

  6. Önnur mál

Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira