01.12.2022

Horft til flutnings kís­il­verk­smiðj­unnar í Helgu­vík eða nýs hlut­verks

Arion banki og PCC hafa slitið formlegum viðræðum um möguleg kaup PCC á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Samhliða hefur Arion banki sagt upp raforkusamningi við Landsvirkjun þar sem framleiðsla kísils var forsenda samningsins. Því er allt útlit fyrir að kísilverksmiðjan í Helguvík verði ekki gangsett á ný og að hún verði flutt eða henni fært nýtt hlutverk.

Arion banki eignaðist kísilverksmiðjuna árið 2018 í kjölfar gjaldþrots fyrri eiganda, United Sílicon hf. Síðan þá hefur dótturfélag bankans, Stakksberg ehf., unnið endurbótaáætlun fyrir verksmiðjuna og leitað að hæfum kaupendum sem gætu rekið verksmiðjuna með ábyrgum hætti. Að höfðu samráði við viðeigandi stjórnvöld var nýju umhverfismati, sem byggðist á endurbótaáætluninni, lokið og sýndu fjárfestar verksmiðjunni umtalsverðan áhuga. Arion banki gerði þá kröfu að mögulegir kaupendur væru traustir aðilar sem byggju yfir yfirgripsmikilli reynslu af rekstri kísilvera.

Í upphafi þessa árs gekk bankinn til einkaviðræðna við PCC sem hefur starfrækt kísilverksmiðju á Bakka í góðri sátt við nærsamfélagið. Það var mat bankans að PCC byggi yfir nauðsynlegri þekkingu og reynslu til að starfrækja verksmiðjuna í Helguvík með farsælum hætti. Voru fulltrúar PCC og Arion banka sammála um að forsenda þess að farið yrði af stað aftur með kísilframleiðslu í Helguvík væri að slíkt yrði gert í góðri sátt við yfirvöld og íbúa Reykjanesbæjar. PCC hefur undanfarið kynnt metnaðarfull áform sín fyrir ýmsum hagaðilum og er niðurstaða þeirrar vinnu að félagið telur ekki grundvöll fyrir áframhaldandi viðræðum um kaup PCC á kísilverksmiðjunni.

Í kjölfar þessarar niðurstöðu mun Arion banki horfa til sölu á þeim innviðum sem eru til staðar í Helguvík, annað hvort til flutnings eða með það að markmiði að koma þar upp annars konar starfsemi en kísilframleiðslu. Viðræður eru þegar í gangi við nokkra aðila, innlenda og erlenda, í þessu sambandi. Ákvörðunin hefur ekki áhrif á bókfært verðmat eignarinnar, en verðmat verður endurmetið með hliðsjón af þróun þessara viðræðna.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Saga kísilversins í Helguvík er vel þekkt. Við höfum litið á það sem skyldu okkar að reyna til þrautar að nýta þá innviði og þau verðmæti sem þarna hefur verið fjárfest í. Þar höfum við horft til allra hagaðila, ekki síst íbúa Reykjanesbæjar sem urðu fyrir óþægindum á þeim stutta tíma sem verksmiðjan var starfrækt. Við unnum metnaðarfulla endurbótaáætlun á verksmiðjunni sem fór í gegnum umhverfismat og leituðum að rekstraraðila með nauðsynlega þekkingu og getu til að starfrækja verksmiðjuna á umhverfisvænan máta, í sátt við samfélagið. Bankinn telur fullreynt að þarna verði rekin kísilverksmiðja og því tekur við nýr kafli sem miðar að því að flytja verksmiðjuna eða færa henni nýtt hlutverk.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira