06.04.2017

Hrað­þjónusta all­an sólar­hringinn í Kópa­vogi

Gerðar hafa verið gagngerar breytingar á útibúi Arion banka á Smáratorgi í Kópavogi. Af því tilefni birtist neðangreint viðtal við Hafdísi Hansdóttur, svæðis- og útibússtjóra Arion banka í Kraganum, í Kópavogspóstinum fimmtudaginn 6. apríl.

Hraðþjónusta allan sólarhringinn alla daga vikunnar

Nýlega voru gerðar gagngerar breytingar á útibúi Arion banka á Smáratorgi í Kópavogi. Útibúið er allt hið glæsilegasta og búið nýjustu tækni á sviði bankaþjónustu. Liður í breytingunum sem gerðar voru er nýtt hraðþjónustusvæði sem er opið allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Þar eru meðal annars hraðbankar af nýjustu gerð sem bjóða upp á innlagnir, greiðslu reikninga og millifærslur til viðbótar við hefðbundna hraðbankaþjónustu.

Hafdís Hansdóttir, svæðis- og útibússtjóri Arion banka, er að vonum ánægð með breytingarnar og segir þær endurspegla breyttar kröfur viðskiptavina til bankaþjónustu. „Við erum að stórauka þjónustuna okkar með því að bjóða aðgengi að hraðþjónustusvæði allan sólarhringinn. Það þýðir að viðskiptavinir okkar hafa nú aðgengi að þjónustu utan afgreiðslutíma útibúsins sem ekki var í boði áður, til dæmis að kaupa myntrúllur, telja smámynt, leggja inn seðla og fleira sem ný kynslóð hraðbanka býður upp á“ segir Hafdís og útskýrir að hinir nýju hraðbankar séu um margt svipaðir netbankanum. „Nýju hraðbankarnir geta birt yfirlit yfir stöðu allra reikninga viðskiptavinarins og ógreidda greiðsluseðla auk þess sem hægt er að millifæra, bæði á milli eigin reikninga og á reikning annarra.“

Bankaviðskipti hvar og hvenær sem er

Hafdís segir starfsfólk bankans finna að viðskiptavinir vilji í auknum mæli sinna bankaviðskiptum sínum þegar þeim hentar, þar sem þeir eru staddir. „Netbankinn var auðvitað algjör bylting á sínum tíma en í dag eru kröfurnar einfaldlega orðnar aðrar og meiri. Með tilkomu Arion appsins fyrir nokkrum árum færðust helstu bankaviðskipti yfir í lófa viðskiptavinarins þar sem hægt er að taka stöðuna, greiða reikninga, millifæra, dreifa kreditkortareikningum og margt fleira.“

Samhliða breyttum kröfum viðskiptavina og hraðri tækniþróun telur Hafdís hlutverk bankastarfsfólks vera að breytast. „Það að viðskiptavinir geti að miklu leyti sinnt sínum fjármálum sjálfir þýðir að verkefni okkar sem störfum í bankanum breytast. Hluti verkefnanna færist til dæmis frá því að framkvæma hlutina fyrir viðskiptavininn yfir í að gera þá með honum og leiðbeina við notkun nýrra þjónustuleiða“ segir Hafdís og bætir við að fyrstu viðbrögð viðskiptavina við breytingunum séu afar góð. „Í nýja útibúinu er góð aðstaða til að leiðbeina við notkun á vörum og tækni, útibúið er opnara en áður og við leggjum enn meira upp úr því að skapa notalega stemningu fyrir viðskiptavini okkar.“

Áhersla á stafræna þjónustu og persónulega ráðgjöf

Aðgerðum sem viðskiptavinir geta framkvæmt á netinu, í appinu og í hraðbönkum fjölgar ört en Hafdís segir Arion banka einmitt leggja ríka áherslu á stafrænar lausnir. „Við höfum einsett okkur að vera fremsti stafræni banki landsins og stafrænum þjónustuleiðum okkar fer sífellt fjölgandi. Á sama tíma leggjum við einnig mikla áherslu á ábyrga ráðgjöf og fræðslu.“

Sem dæmi um nýlegar breytingar nefnir Hafdís nýtt greiðslumat Arion banka sem kynnt var í lok síðasta árs. „Í stað þess að þurfa að skila alls konar gögnum og bíða svo í daga eða vikur eftir niðurstöðu getur nú hver sem er farið í gegnum greiðslumat á aðeins þremur mínútum á arionbanki.is. Þeir sem eru í fasteignahugleiðingum geta svo í framhaldinu valið að sækja um íbúðalán með einföldum hætti á netinu eða bókað fund með fjármálaráðgjafa hjá bankanum sem kynnir lánaframboðið okkar og aðstoðar við næstu skref.“

Hafdís segir aukna áherslu á bókaða fundi mælast vel fyrir. „Bókaðir fundir hjá ráðgjafa skila viðskiptavinum okkar einfaldlega betri þjónustu. Fundirnir lágmarka biðtíma í útibúi og gera ráðgjafanum mögulegt að undirbúa fundinn betur sem skilar viðskiptavininum betri og persónulegri ráðgjöf.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira