05.07.2018

Hring­braut fjall­ar um um­hverf­is­mál Arion banka

Umhverfismál hafa verið ofarlega á baugi hjá okkur í Arion banka undanfarin ár og fengu þau aukið vægi þegar bankinn undirritaði loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar í nóvember 2015.

Í þættinum Súrefni á Hringbraut fara Hlédís Sigurðardóttir, verkefnastjóri samfélagsábyrgðar, og Alfreð Ómar Alfreðsson, yfirmatreiðslumaður Arion banka, yfir þau fjölmörgu verkefni sem bankinn hefur ráðist í á sviði umhverfismála.

Í þættinum er m.a. farið yfir mikilvægi þess að hafa góða yfirsýn yfir umhverfismálin, nauðsyn þess að setja sér mælanleg markmið og síðast en ekki síst segja þau Hlédís og Alfreð frá þeirri vitundarvakningu sem orðið hefur meðal starfsfólks í tengslum við að draga úr matarsóun. Hægt er að horfa á þáttinn í fullri lengd hér fyrir neðan og á vef Hringbrautar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira