25.11.2024

Hús­næð­is­markaðurinn: Horf­ur & hag­nýt ráð

Arion banki heldur stuttan fræðslufund um húsnæðismarkaðinn þriðjudaginn 26.nóvember í Borgartúni 19.

Fundurinn er öllum opinn og verður sömuleiðis í beinu streymi á Facebook.

Dagskrá:

Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri, flytur opnunarávarp.

Næst fjallar Kári S Friðriksson, hagfræðingur, um húsnæðismarkaðinn.

Að lokum fer Jarþrúður Birgisdóttir, þjónustustjóri í útibúi Arion banka á Höfða, í saumana á öllu því sem viðkemur endurfjármögnun. Jarþrúður ræðir enn fremur breytilega og fasta vexti, verðtryggð og óverðtryggð lán og muninn á jöfnum greiðslum og jöfnum afborgunum.

Dagskráin hefst klukkan 17.00 og stendur til 18.00.

Við hvetjum öll þau, sem vilja fræðast um íslenska húsnæðismarkaðinn, til að sækja þennan áhugaverð fund.

Skráning fer fram hér

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira