14.07.2023

Hvenær hefjast af­borg­anir af lán­in­u?

Meðan á námi stendur greiðir nemandi engar afborganir af námslánum, hvorki af lánum vegna skólagjalda né af framfærslulánum. Þegar öllu námi er lokið og ekki vilji til að þiggja áfram námslán hefur nemandinn val um að skuldabréfið sé útbúið sem verðtryggt eða óverðtryggt lán og hvort afborganir séu tekjutengdar eða ekki.

Fyrir þá nemendur sem klára nám sitt innan þess tíma sem skipulag skólans gerir ráð fyrir er hægt að sækja um að 30% af námsláninu sé skráð sem námsstyrkur og því ekki greitt til baka.
Þegar er ár er liðið frá því námi var lokið og frá síðustu greiðslu á námslánum hefjast afborganir á láninu í samræmi við það sem samið var um.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira