10.02.2016

Iða Brá Bene­dikts­dóttir ráð­in framkvæmda­stjóri fjár­festingar­banka­sviðs Arion banka

Iða Brá Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Iða Brá tekur við starfinu af Halldóri Bjarkar Lúðvígssyni sem nýverið hætti störfum hjá bankanum.

Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Rotterdam Shcool of Management í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 þegar hún hóf störf í greiningardeild bankans. Hún hefur gegnt ýmsum störfum hjá bankanum en starfaði lengi sem forstöðumaður í fjárstýringu bankans. Undanfarin ár hefur Iða Brá gengt starfi forstöðumanns einkabankaþjónustu Arion banka en þar áður stýrði hún samskiptasviði bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfestum og HB Granda hf.

Iða Brá er gift Einari Þór Guðjónssyni viðskiptafræðingi og saman eiga þau þrjú börn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira