30.09.2025

Ís­lenska hag­kerfið stíg­ur öld­un­a: Efna­hags­horf­ur 2025-2028

Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að þjóðarskútan haldi til hafs á ný eftir samdrátt síðasta árs. Innlend eftirspurn, með einkaneysluna í broddi fylkingar, hefur verið atkvæðameiri en áður var reiknað með og mun halda sínu hlutverki sem driffjöður hagvaxtar. Jafnvel þó verulegur innflutningur í tengslum við gagnaver og uppbyggingu landeldis eigi stóran þátt í neikvæðu framlagi utanríkisverslunar í ár, liggur í augum uppi að útflutningshorfurnar hafa síst batnað; flugframboð til landsins hefur dregist snarpt saman, krónan er sterk og áfram er mikil óvissa um efnahagsstefnu stærstu hagkerfa heims.

Á næsta ári er útlit fyrir að innflutningur dragist saman, sem skýrist fyrst og fremst af minni fjárfestingu áðurnefndra gagnavera, og að utanríkisverslun leggist á sveif með einkaneyslunni. Þó útlit sé fyrir að einkaneyslan verði dráttarklár hagvaxtar út spátímann eru horfurnar þokukenndari en oft áður, þar sem verðbólgan hefur reynst treg í taumi og vextir því haldist háir lengur en áður var spáð. Áhrif þessa á innlenda eftirspurn eru ekki enn komin fram að fullu, en sýnileg merki kólnunar er að finna bæði á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði.

Við væntum þess að áhrif þétts taumhalds peningastefnunnar komi enn skýrar fram á næsta ári, í auknu atvinnuleysi og raunverðslækkunum á húsnæðismarkaði. Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott þar sem aukið atvinnuleysi dregur að öðru óbreyttu úr verðbólguþrýstingi. Þrátt fyrir að verðbólgan verði yfir verðbólgumarkmiði út spátímann eigum við von á tveimur vaxtalækkunum á næsta ári og að vextir verði komnir í 6,25% undir blálok spátímans. Krónan, sem er mjög sterk um þessar mundir, gæti hins vegar lagt stein í götu verðhjöðnunar taki hún að veikjast verulega, en í þessari spá er gert ráð fyrir hógværri veikingu frá og með næsta ári.

Eins og ávallt er óvissan mikil, ekki síst í alþjóðamálum en ekki eru öll kurl komin til grafar varðandi vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum. Hvernig sem fer teljum við að þjóðarskútan sé vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó.

Íslenska hagkerfið stígur ölduna: Efnahagshorfur 2025-2028

Íslenskur sjávarútvegur í heimsklassa

Sjávarútvegur hefur verið samofinn hagsögu Íslands frá landnámi og staðið af sér ýmiss áföll, aðlagast breyttum aðstæðum og haldist samkeppnishæfur þrátt fyrir misgóðar aðstæður.

Í skýrslu Arion Greiningar um sjávarútveginn fjöllum við um hvernig kvótakerfið hefur skapað umgjörð sem hefur gert íslenskum sjávarútvegsfélögum kleift að komast í fararbrodd á heimsvísu. Við skoðum rekstur og rekstrarskilyrði, og greinum áhrif nýs fiskveiðigjalds. Þá köfum við ofan í hraðan vöxt og stórtækar áætlanir í fiskeldi.

Ef framtíðin rímar við fortíðina eru allar líkur á því að fyrirtækjunum takist það sem fyrr að tækla nýjar áskoranir, aðlagast breyttum aðstæðum og finna leiðir til þess að halda Íslenskum sjávarútvegi í fararbroddi.

Íslenskur sjávarútvegur í heimsklassa

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira