15.05.2017

Jón Finn­boga­son ráð­inn for­stöðu­maður lánaum­sýslu hjá Arion banka

Jón Finnbogason, sem verið hefur forstöðumaður skuldabréfateymis Stefnis, hefur verið ráðinn forstöðumaður lánaumsýslu Arion banka. Um er að ræða nýja deild og stöðu innan bankans sem heyrir beint undir bankastjóra. Undir þessa nýju deild heyrir umsýsla og greining vegna stærri lánveitinga sem áður fór fram innan lánasviða og áhættustýringar bankans.

Jón útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998, hlaut lögmannsréttindi fjórum árum síðar og hefur jafnframt lokið verðbréfanámi. Jón hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2000, nú síðasta sem forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni frá árinu 2013. Áður starfaði Jón meðal annars sem aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka og forstjóri Byrs hf. Þá hefur hann setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og stofnana.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira