21.09.2017

Klapp­ir Græn­ar Lausnir hf. skráð á First North

Félagið Klappir Grænar Lausnir hf. var skráð á Nasdaq First North markað Kauphallarinnar í dag.

Klappir er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem þróar, selur og innleiðir hugbúnaðarlausnir á sviði umhverfismála. Aðferðafræði og hugbúnaðarlausnir Klappa gera fyrirtækjum, sveitarfélögum og stjórnvöldum fært að setja sér mælanleg markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og upplýsa um árangur á hagkvæman og gagnsæjan hátt. Óhætt er að segja að lausnir Klappa séu í fararbroddi, ekki bara hér á landi heldur á heimsvísu.

Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt, en skráningin markar nokkur tímamót á skráðum markaði hér á landi. Félagið gefur ekki út nýtt hlutafé en öll bréf í B flokki hlutabréfa verða skráð. Forstjóri og stofnandi fyrirtækisins er dr. Jón Ágúst Þorsteinsson, en Jón Ágúst stofnaði meðal annars fyrirtækið Marorku og hefur mikla reynslu af þróun umhverfislausna.

Félagið Klappir Grænar Lausnir varð til í núverandi mynd í byrjun þessa árs þegar félögin KGS, Datadrive og Ark Technology sameinuðust. Datadrive tók þátt í Startup Reykjavík, sem er viðskiptahraðall Arion banka, árið 2015.

Arion banki var viðurkenndur ráðgjafi Klappa Grænna Lausna í skráningarferlinu. Jafnframt er Arion banki viðskiptavinur fyrirtækisins en umhverfis- og samfélagsskýrsla Arion banka fyrir árið 2016 var unnin í góðu samstarfi við fyrirtækið og byggir á þeirra lausnum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira