12.03.2018

Kon­ur í ný­sköp­un #Eng­ar­Hindr­anir

Næstkomandi fimmtudag standa Startup Reykjavík, Ungar athafnakonur og Women Tech Iceland fyrir viðburðinum Konur í nýsköpun #EngarHindranir. Viðburðurinn stendur á milli kl. 15 og 17 í Marshall húsinu og er haldinn í samstarfi við Sendiráð Banaríkjanna í Reykjavík og Crowberry Capital.

#EngarHindranir er átak sem Icelandic Startups stendur fyrir til þess að hvetja konur til þátttöku í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi með því að sýna sterkar fyrirmyndir úr sprotaumhverfinu. Átakið hefur skilað sér í jafnara kynjahlutfalli í verkefnum sem Icelandic Startups stendur fyrir.

Fram koma:

  • Kolbrún Hrafnkelsdóttir, forstjóri og stofnandi Florealis

  • Þórey Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent

  • Emily Cintora, stjórnmálaerindreki Sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík, og Ester Halldórsdóttir, viðskiptafulltrúi Sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík

  • Helga Valfells, Hekla Arnardóttur og Jenný Ruth Hrafnsdóttir, stofnendur fjárfestingarsjóðsins Crowberry Capital, munu deila tölfræði um fjárfestingar á Íslandi, hverjir eru að leita að fjármagni og hverjir eru að fá fjármagn

Fundarstjóri verður Edda Konráðsdóttir, verkefnastjóri Startup Reykjavík.

Sætafjöldi er takmarkaður og því mikilvægt að staðfesta mætingu.

Skráning á viðburðinn

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Þar njóta tíu sérvalin sprotafyrirtæki ráðgjafar og leiðsagnar þaulreyndra sérfræðinga í tíu vikur í þeim tilgangi að hraða þróunarferlinu og koma vöru á markað. Opið er fyrir umsóknir á startupreykjavik.is til og með 8. apríl.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira