09.11.2017

Kon­urnar í Arion banka styrkja kvenna­deild­ir Land­spít­al­ans

Á dögunum tóku konurnar í Arion banka höndum saman og efndu til konukvölds með það að markmiði að safna fjármunum fyrir kvennadeildir Landspítalans.

Á dagskrá konukvöldsins var tískusýning, góðgerðarhappdrætti, söngur og tónlist en fjöldi fyrirtækja aðstoðaði við framkvæmd kvöldsins, m.a. með vinningum fyrir happdrættið. Alls safnaðist ein milljón og sexhundraðþúsund krónur sem renna óskiptar til kvennadeildanna.

Það var Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, sem afhenti Ingibjörgu Th. Hreiðarsdóttur, yfirljósmóður göngudeildar mæðraverndar og fósturgreiningar, styrkinn. Ingibjörg hafði sérstaklega á orði að kvennadeildirnar væru afar háðar frjálsum framlögum sem oftar en ekki kæmu frá konum og að á kvöldi sem þessu sæist því vel að konur væru í raun konum bestar.

Maríanna Finnbogadóttir, sérfræðingur í markaðsdeild Arion banka, er ein þeirra sem skipulagði kvöldið:

„Þetta er annað konukvöldið sem við stöndum fyrir í Arion banka en það fyrsta var fyrir fjórum árum síðan. Allt frá þeim tíma höfum við rætt um að endurtaka leikinn enda er það frábær tilfinning að finna samtakamáttinn þegar svona hópur kemur saman til að leggja sitt af mörkum.

Langflest okkar eiga einhverja tengingu við kvennadeildir Landspítalans og stór hluti kvenna bankans hefur eða mun á einhverjum tímapunkti, nýta sér þjónustu deildanna. Við þurftum því ekki að hugsa okkur lengi um þegar kom að því að ákveða hvernig söfnunarfénu yrði varið.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira