30.06.2017

Korta­tryggingar Arion banka fær­ast til Varðar

Frá og með 1. júlí 2017 munu kortatryggingar Arion banka flytjast frá Vátryggingafélagi Íslands hf. (VÍS) til Varðar hf. Engin breyting verður á kortatryggingum eða skilmálum við þennan flutning.

Korthafar Arion banka njóta því tryggingaverndar hjá Verði frá og með 1. júlí 2017. Hægt er að nálgast skilmála og aðrar upplýsingar um kortatryggingar einstakra kortategunda á vef Varðar.

Lendi korthafar í tjóni á ferðalögum erlendis skal tilkynna það strax. Tjón sem verða frá og með 1. júlí skal tilkynna til Varðar í síma 5141000 eða á netfangið vordur@vordur.is. Tjón sem áttu sér stað fyrir 1. júlí skal tilkynna til VÍS, nánari upplýsingar má finna á vef VÍS. Komi upp alvarleg veikindi eða slys á ferðum erlendis skal líkt og áður hafa samband við SOS International neyðarþjónustuna í síma +(45) 70 10 5050.

Athugið að öll gildisákvæði haldast óbreytt, t.d. þurfa korthafar ekki að greiða ferðakostnað erlendis með kreditkorti Arion banka til að virkja tryggingar kortsins. Korthafi er tryggður á ferðalögum erlendis samkvæmt kortaskilmálum viðkomandi korts, eða í allt að 60 daga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira