21.05.2025

Krefj­andi en líka af­ar gef­andi að reka sprota­fyrir­tæki

Til að vinna í sprotafyrirtæki, hvað þá stofna eitt slíkt, þarf að búa yfir eldmóði og hafa ástríðu fyrir verkefnum sínum

Ekki spillir heldur fyrir að kunna vel við samstarfsfélaga sína, vera tilbúinn að leggja mikið á sig og vinna langa vinnudaga. Allt getur þetta reynt á þolrifin - en þegar vel gengur er líka fátt meira gefandi.

Vel sóttur viðburður

Þetta var á meðal þess sem fram kom á vel sóttum viðburði Arion banka á Iceland Innovation Week þann 14. maí síðastliðinn, sem haldinn var undir yfirskriftinni „How to Become Bankable“. Sjónum var sérstaklega beint að því hvernig sprotar geta lyft rekstrinum upp á næsta stig og orðið „bankable“, sem felur í sér að ávinna sér lánstraust hjá bönkum og fjármálastofnunum og þurfa því ekki lengur að reiða sig á styrki og fjármagn frá fjárfestum.

"Jarþrúður Ásmundsdóttir, viðskiptastjóri hjá Arion banka, sagði frá ánægjulegu samstarfi bankans við alls kyns sprotafyrirtæki í áranna rás og helstu vörum sem bankinn býður upp á og henta þessum fyrirtækjum, en bankinn hefur um árabil stutt við nýsköpun í fjölda atvinnugreina."

Næst stýrði Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, forstöðumaður á fyrirtækja og fjárfestingabankasviði Arion banka, fjörugum pallborðsumræðum þar sem þátttakendur komu úr ýmsum áttum: Ívar Kristjánsson frá 1939 Games, Berglind Rán Ólafsdóttir frá Orf líftækni og Helgi Már Hrafnkelsson frá Venju röktu sögu fyrirtækja sinna og sögðu frá margvíslegum áskorunum í fjármögnunarferlinu, og Helga Valfells hjá Crowberry Capital lýsti því hvernig hún finnur spennandi fjárfestingarkosti, en sem stendur fjárfestir Crowberry Capital í á fjórða tug fyrirtækja. Fulltrúar fyrirtækjanna töluðu enn fremur um mikilvægi þess að vaxtarfyrirtæki væru í góðum tengslum við bankann sinn og þekktu fólkið þar – og að bankinn hefði innsýn í rekstur þeirra og skildi helstu áskoranirnar.

Að pallborðinu loknu gafst viðstöddum færi á að staldra við í góðum félagsskap og njóta veitinga í einstöku blíðskaparveðri

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira