12.12.2017

Krist­björg Héð­ins­dóttir er nýr úti­bús­stjóri í Borgar­túni

Kristbjörg Héðinsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Arion banka í Borgartúni 18. Hún tekur við starfinu af Elísabetu Árnadóttur sem hefur fært sig um set innan bankans og tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu.

Kristbjörg er viðskiptafræðingur að mennt en hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og námi í markþjálfun. Kristbjörg hefur starfað hjá Arion banka frá árinu 2004 en áður starfaði hún á auglýsingastofunni Gott Fólk McCann-Erickson. Á árunum 2013-2016 var Kristbjörg útibússtjóri Arion banka í Garðabæ en síðastliðið ár hefur hún gegnt starfi forstöðumanns þjónustustýringar hjá bankanum.

Arion banki rekur 24 útibú um land allt. Útibú Arion banka í Borgartúni 18 er stærsta útibú bankans en þar starfa á fimmta tug sérfræðinga á sviði einstaklings- og fyrirtækjaviðskipta. Þá hefur bankinn kynnt fjölda nýrra stafrænna lausna á undanförnum misserum með það að markmiði að veita viðskiptavinum sínum þægilegri bankaþjónustu. Á dögunum opnaði Arion banki nýtt útibú í Kringlunni þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að njóta leiðsagnar sérfræðinga við notkun stafrænna lausna bankans á afgreiðslutíma Kringlunnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira