24.10.2018

Kvenna­frí­dag­ur - skert þjónusta eft­ir 14:55

Í dag, miðvikudag 24. október, er hinn árlegi kvennafrídagur og mun fjöldi kvenna leggja niður störf kl. 14.55. Gera má ráð fyrir að það hafa áhrif á þjónustu í útibúum og þjónustuveri bankans.

Arion banki styður þetta framtak enda kynbundinn launamunur og mismunun ólíðandi. Við erum stolt af því að hafa nýverið fengið, fyrst íslenskra banka, heimild til að nota jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins eftir að bankinn fékk vottun frá faggildum vottunaraðila, BSI á Íslandi. Arion banki hefur verið vottaður af BSI á Íslandi síðan árið 2015 þegar bankinn fékk fyrst Jafnlaunavottun VR. Þeirri vottun hefur bankinn viðhaldið með reglulegum úttektum og felur hún í sér staðfestingu á því að til staðar sé jafnlaunakerfi sem stuðlar að því að starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf sé ekki mismunað í launum.

Arion banki hefur verið aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact frá árinu 2014.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira