06.01.2017

Kynning á Fyrir­tækja­verk­efni Ungra frum­kvöðla

Þann 10. janúar 2017 verður Fyrirtækjaverkefni Ungra frumkvöðla 2017 (Junior Achievement á Íslandi) formlega ýtt úr vör með kynningarviðburði í Háskólanum í Reykjavík. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og stjórnarformaður Ungra frumkvöðla, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Þór Sigfússon, stofnandi sjávarklasans, Einar Gunnar Guðmundsson frá Arion banka, og Sveinn Ólafur Lúðvíksson frá Sölva Chocolates halda stutt erindi. Arion banki er einn af aðalbakhjörlum verkefnisins.

Sölva Chocolates (www.solvachocolates.com) vann samkeppni Ungra frumkvöðla um fyrirtæki ársins 2016. Sölva Chocolates tók þátt í Startup Reykjavík á árinu 2016 og er nú í fullum rekstri í Kópavogi. Fyrirtækið tók þátt í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fram fór í Sviss í júlí á síðasta ári og hreppti þar samfélagsmiðlaverðlaun. Saga Sölva Chocolates er gott dæmi um það hvernig Fyrirtækjaverkefni Ungra frumkvöðla veitir nemendum dýrmæta reynslu við stofnun nýrra fyrirtækja sem nýtist þegar út í raunveruleikann er komið.

Reiknað er með að um um 500 nemendur í um helmingi íslenskra framhaldsskóla muni taka þátt í Fyrirtækjaverkefni Ungra frumkvöðla árið 2017. Í verkefninu stofna nemendur sín eigin smáfyrirtæki og fá reynslu af frumkvöðlastarfi. Á vefsíðunni www.ungirfrumkvodlar.is, má finna frekari upplýsingar um verkefnið og þá skóla sem taka þátt í því ár. Í samstarfi við sjávarklasann verða ungir frumkvöðlar sérstaklega hvattir til að koma með hugmyndir um nýsköpun sem tengist hafinu en að sjálfsögðu er opið fyrir allar nýsköpunarhugmyndir.

Áhugasamir eru velkomnir á kynningarfundinn sem fram fer eins og áður segir Í Háskólanum í Reykjavík, þriðjudaginn 10. janúar kl. 17.00-18.00.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira